Erfiður sunnudagur í vinnunni og svo sannarlega búin á því...engin klósettferð í 12 tíma, enginn matur í 12 tíma, engin pása í 12 tíma...en ég fékk samt að heyra það frá manneskju sem veit að hún er fræg og heldur að það þýði að hún megi hella sér yfir næstu saklaustu manneskju...bara af því að hún er fræg og ekki í góðu skapi...líklegast þunn...sat líklegast á Næstabar til klukkan 6.30 í morgun ! Íslendingar eru yndislegir...eiga það til að vera snobbaðir...en fatta það ekki að þegar maður er kominn í Ölfusið þá er ekki cool að vera snobbaður. 101 Reykjavík-Ölfus...ekki það sama !!!
Annars er ég alveg að fíla mig hérna í sveitinni...búin að vera í 3 nætur og er alveg salla róleg . Það er ansi gott að komast í burtu frá Reykjavík, lífið er eitthvað svo einfalt hérna. Nú þarf ég bara að selja Einsa hugmyndina um að sveitin sé málið :) ...veit samt ekki alveg hvort það takist.
Annars dreymdi mig
Tævan í nótt, ég held bara svei mér þá að ég sakni Tævans pínulítið...það er eitthvað svo skrítið að vera bara allt í einu heima. Kanski sakna ég bara
krakkanna og Pig Pen
og La bodeka
og keilu á miðvikudögum
og chao fan ( steikt hrísgrjón )
og að fólk horfi ALLTAF á mig
og að krakkarnir öskri á eftir mér "wai guo ren" ( útlendingur )
og skordýranna í herberginu mínu
og að Soffía vekji mig á hverjum morgni
og setningunni " Það þýðir ekki að gráta soðinn hest " ...mikið notuð
og æji fáum okkur bara hvítvín
og að þeysast um á
vespunni minni...upp og niður Taichung gang lu
og feita ljóta öryggisverðinum sem var alltaf að reyna við okkur Soffíu
og 7/11 búðunum
og lyktinni af chou dou fu
og húsreglunni: það á alltaf að vera til nóg áfengi í ísskápnum..svona ef einhver kæmi í heimsókn
og að einhver geti hlegið að vandamálum mínum
og setningunni hvað eigum við að borða
og að vera óákveðin
og pissa í gat og auglýsingabílanna sem vekja mann eldsnemma
og að sjá kínverja kúka á vörubílspallinn sinn
og skilaboðanna frá Wyn
og skilta eins og
þessu og tímanna í kínverskum forn bókmenntum og ljóðum ...hummm....eða kanski sakna ég bara Soffíu minnar...hver veit ! Kanski langar mig bara í smá fréttabréf frá Tævan...allar kjaftasögurnar ;)