Thursday, February 22, 2007

Haukabergið

Tilfinningar dagsins eru blendnar.
Frá því að ég man eftir mér hefur miðpunktur lífs míns verið á Haukabergi 3. Þar hafa mamma og pabbi búið í um 40 ár og þar hef ég alltaf átt heima og innst inni hélt ég alltaf að þar myndi ég alltaf eiga heima. Þegar ég var lítil öfundaði ég alltaf krakkana sem bjuggu í blokk...mér fannst ótrúlega svalt að búa í blokk og mér fannst líka ótrúlega svalt að sumir vinir mínir voru alltaf að flytja...skipta um hús, það var eitthvað svo spennandi. En í dag er ég ótrúlega sátt við að hafa alltaf átt heima á Haukabergi 3 og ótrúlega sátt við góðu minningarnar þaðan og nágrannana sem voru eins og foreldrar mínir...ekkert á því að flytja úr Haukaberginu.

Í Haukaberginu:
*Var ég skírð
*Kenndi ég Óla að hjóla.
*Hafa Ella, Davíð, Siggi og Sigga alltaf verið og eiga alltaf að vera í mínum augum...en ég var frekar sár þegar Pési og Lauga fluttu.
*Bjó eitt sinn Ellen þýska...sem ég var alltaf frekar hrædd við...og Arnar Snær
*Var einu sinni skemmtileg klöpp þar sem við óli gátum dundað okkur allan daginn í bílaleik.
*Var og er brekka sem var ótrúlega brött í minningunni.
*Voru oft haldin party fyrir skólaböll

En í dag var Haukaberg 3 selt og þótt ég sé sátt, foreldra minna vegna, er ég samt soldið leið.

En hver veit nema að einn daginn kaupi ég Haukaberg 3 og að Óli og Silla kaupi Haukaberg 6 og Maggi, Sesselía og Ingvar flytji líka í Haukabergið...væri það ekki frábært ? Ég finn það á mér ykkur finnst þetta snilldar hugmynd.

9 comments:

  1. Hinn æðsti auður er að losna undan fjötrum hlutanna.
    Hús er bara steypa, en minningarnar um heimilið lifa í huga þér hvar sem þú ert.
    Meira að segja líður tíminn og hlutirnir breytast þó þú standir í stað. Ekkert varir að eilífu!

    ReplyDelete
  2. já það er rétt

    ReplyDelete
  3. Anonymous10:36 PM

    Jebb... Haukabergið rokkar...
    IJ

    ReplyDelete
  4. Anonymous10:11 PM

    góð samantekt á lífinu í haukaberginu, hjóla í "stóru" brekkunni, bílaleikur í klöppinni ofl. en hvað með gunnar færeyska?
    þorvaldur og ingibjörg eru sönnun þess að maður kemur í manns stað, jafnvel þó þau þenji ekki löduna eins og ellen þýska.
    ég vona samt að þú mætir áfram í götugrillin, svona til að taka pólitískt spjall við sigga ofl. í þeim dúr.
    kv,
    ov

    ReplyDelete
  5. ertu að flytja í íbúðir eldri borgara?

    ReplyDelete
  6. hahaha...já ætli ég muni ekki gera það. Það er orðið slæmt þegar maður flytur með mömmu og pabba á elliheimilið. Ég verð þó komin með íbúð í Shang Hai þegar þau flytja þannig að ég get bara sagt að ég búi í SH en sé í "heimsókn" hjá mömmu og pabba. Auðvitað mæti ég í götugrillið...þið eruð líka velkomin í götugrillið á elló

    ReplyDelete
  7. Anonymous9:38 AM

    Vigdís... Sigga Magga... Sveinn... MATUR!!!
    ij

    ReplyDelete
  8. hehehe...
    Óli ég man ekki eftir þessum Gunnari færeyska. En hef nú heyrt hann nefndan.

    ReplyDelete
  9. Anonymous7:12 PM

    hrói, ekki ég, gróf vörubílinn hans gunnars færeyska í einhverju þvermóðskukasti... ætli vörubíllinn sé ekki núna einhversstaðar undir fína sólpallinum hans flosa!
    ov

    ReplyDelete