Ég vaknaði einstaklega pirruð í morgun...veit ekki alveg afhverju...kanski út af öllum prófunum sem við erum búin að vera í þessa vikuna og heilinn er orðinn steiktur af kínverskum táknum...kanski af því að ég er búin að fá svo mörg tilboð í íbúðina og ég verð að feisa það að ég sé að selja...kanski af því að hitinn er kominn niður í 20° og ég þurfti að fara í kalda sturtu... hver veit !
...en bekkjarfélagarnir gerðu allt sem þeir gátu til þess að hressa mig við...Chris hljóp út í kaffiteríu og náði í kaffi handa mér og Carolin ákvað að tala minna en Zhang kennari barði mig með priki því hún hélt að ég hefði læst hana úti...já alltaf fjör í skólanum.
...eftir hádegi ákvað ég að skella mér í nudd og reyna að slappa aðeins af. Þegar ég kom inn á nuddstofuna varð allt vitlaust...kerlingarnar hlupu um og öskruðu...TALAR EINHVER ENSKU HÉRNA !!!! Þær urðu svo frekar vandræðalegar þegar ég sagði þeim að ég gæti talað smá kínversku...
Ég hef ekki verið lamin fyrir að læsa einhvern úti, en ég hef lamið á hurð þegar Atli læsti mig inni á klósti!
ReplyDelete...já það er ekki tekið út með sældinni að vera nemandi...ýmislegt sem við verðum að þola !
ReplyDelete...Hann Atli minn mynnir mig stundum soldið mikið á Emil í Kattholti..hann ætlaði ekkert að gera þetta...þetta bara gerðist óvart !! Hlakka til að sjá hann aftur í Febrúar :)